Grunaður árásarmaður á Íslandsbryggju gaf sig fram

Karlmaður um þrítugt er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið sænskum manni að bana á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn á þriðjudag. Hann er grunaður um að hafa veitt manninum þungt hnefahögg í háls og höfuð með þeim afleiðingum að hann fékk heilablæðingu og brot á hryggjarlið.Samkvæmt DR stendur hann frammi fyrir ákæru fyrir líkamsárás en ekki manndráp.Lögregla staðfesti í gær að sænski maðurinn væri látinn. Hinn grunaði gaf sig sjálfur fram á lögreglustöð í gær eftir að lögregla lýsti eftir honum, að því er danska ríkisútvarpið greinir frá, en neitar sök.Hann hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Árásin varð á viðburði þar sem sýnt var frá leik á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu á risaskjá.Danskir fjölmiðlar herma að tildrög árásarinnar hafi verið stimpingar m
Grunaður árásarmaður á Íslandsbryggju gaf sig fram

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd