Undirbúa sig undir ofurfellibyl

Yfirvöld á Kyrrahafseyjum Guam og Norður-Marianas-eyja undirbúa komu ofurfellibyls sem búist er við að skelli á í dag. Búist er við vindhraða allt að 78 metrum á sekúndu og rúmlega níutíu í kviðum.Langar raðir hafa myndast á bensínstöðvum og í verslunum síðustu daga þar sem íbúar búa sig undir óveðrið. Um 210.00 búa á þessu svæði og lögregla hefur aukið viðbúnað til muna. Lögreglumenn hafa í dag ekið um byggðir og hvatt fólk til að leita skjóls áður en bylurinn skellur á.
Undirbúa sig undir ofurfellibyl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd