Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir að það að fylgjast með asanum í meirihlutanum á sínum fyrstu starfsdögum minni á látagang í norsku þáttunum Exit. Hann hefur litla trú á að 300 milljónir muni raunverulega sparast með nýlegum uppsögnum og gagnrýnir að mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi verið lögð niður.