„Ég kom mjög oft heim bara grátandi. Mér leið svo illa eftir daginn.“ Þetta segir íslensk kona sem varð fyrir einelti á vinnustað og neyddist til að hætta störfum í kjölfarið. Hún er ein þeirra sem Kristín Helga Magnúsdóttir ræddi við í tengslum við lokaverkefni sitt til meistaragráðu í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri.