Ekkert lát er á mótmælum gegn framkvæmdum við ferðamannaparadís á verndarsvæði í Albaníu, sem hafa staðið linnulaust í yfir mánuð. Mótmælin í gærkvöld voru þau fjölmennustu hingað til.Jared Kushner og Ivanka Trump, tengdasonur og dóttir Bandaríkjaforseta, eru meðal fjárfesta í uppbyggingunni sem mótmælt er. Þau, ásamt öðrum fjárfestum, ætla að byggja ferðamannaparadís við hluta strandlengju Albaníu, sem á að ná yfir hluta eyjunnar Sazan. Þar er fyrir þjóðgarður og griðastaður um 200 fuglategunda sem sumar eru í útrýmingarhættu.Mótmælin hafa verið kölluð Flamingóa-byltingin því staðurinn er einnig griðasvæði flamingóa. Eins hefur fólk haldið á skiltum sem á stendur að Albanía sé ekki til sölu.Mótmælendur telja málið lykta af spillingu og krefjast afsagnar forsætisráðherrans, Edi Rama. Þeir