Stór tímamót eru hjá endurhæfingarstöðinni Ljósinu sem hefur verið til húsa á Langholtsvegi síðan 2007, eða nánast frá stofnun. Senn líður að flutningum og þá fer öll starfsemi Ljóssins yfir á Gylfaflöt í Grafarvogi en allt húsnæðið á Langholtsvegi er komið á sölu.