„Það er náttúrulega fín lína á milli bjartsýni og óskhyggju, held ég, þegar það kemur að efnahagsmálum,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR um ummæli Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra eftir að ríkisstjórnin kynnti ramma að fjárlögum 2027.Þar voru boðuð hallalaus fjárlög í fyrsta skipti síðan 2019 og taldi Daði að forsendur kjarasamninga gætu haldist.„Við sjáum fram á að það að forsendur kjarasamninga eru að bresta í haust og það gefur mér að minnsta kosti ekki tilefni til neinnar bjartsýni,“ segir hún.Forsenduákvæði kjarasamninga kveður á um að heimilt sé að segja þeim upp ef verðbólga í ágúst mælist yfir 4,7% en hún mælist sem stendur 5,2%. TELUR OLÍUVERÐ Á HEIMSVÍSU EKKI HELSTU ÓGNINA Daði Már var nokkuð bjartsýnn á að vextir og verðbólga væru á niðurleið og nefndi að þróun