Gagnaverin eru farin að banka upp á hér á landi segir umhverfissérfræðingur. Ódýr orka ásamt aðgengi að köldu loftslagi og vatni skapar kjöraðstæður fyrir slíka starfsemi. ÁHUGI FYRIR ÞVÍ AÐ SETJA UPP GAGNAVER Á ÍSLANDI „Framtíðin er í þessu, það er bara þannig og við þurfum öll að horfast í augu við það. En ég held að því betur sem við getum undirbúið okkur eða vandað okkur að þá getum við mögulega gert þetta þannig að það verði hagur fyrir nærsamfélagið og umhverfisáhrifum verði haldið í lágmarki,“ segir Elísabet Björney Lárusdóttir, umhverfissérfræðingur hjá Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga.Áhugi er fyrir því að setja upp gagnaver á Íslandi því hér er ódýr, hrein og græn orka, ásamt kæliáhrifum vegna legu landsins. ORKUFREK EN GEFA LÍKA FRÁ SÉR VARMA Samtök sunnlenskra sveitarfé