Lögreglu grunar að hitari sé orsök gaseitrunar á Suðurlandi í gær.Íslensk hjón fundust meðvitunarlaus í tjaldi í Biskupstungum um hádegisbilið í gær. Karlmaðurinn, sem var á áttræðisaldri, var úrskurðaður látinn á vettvangi en konan var flutt á gjörgæslu þungt haldin. Ekki liggur fyrir hver líðan hennar er.Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir að tilkynning hafi borist rétt fyrir hádegi í gær um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi. Hann tilgreinir ekki á hvaða tjaldsvæði í Biskupstungum fólkið var.Lögregla og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang.„Þar er kunningjafólk byrjað að sinna fyrstu hjálp og sjúkraflutningar taka við og eru með endurlífgun í gangi. Endurlífgun ber ekki árangur,“ segir Magnús og vísar þá til karlmannsins.„Í framhaldi fer r