„Við tökum þetta mál að sjálfsögðu mjög alvarlega og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að yfirfara allar öryggisreglur og sjá til þess að tækið verði öruggt í notkun. Það er algjörlega skýrt hjá okkur að öryggi þeirra sem nota hringekjuna sé númer eitt, tvö og þrjú.“Þetta segir Jan Eric Jessen, einn eigenda Hringekjunnar ehf.Hringekja fyrirtækisins féll á Bryggjuhátíð á Stokkseyri í gær og foreldrar tveggja barna sem voru í henni fóru með þau á slysadeild í kjölfarið. Samkvæmt lögreglu meiddust börnin ekki alvarlega. STÖÐVUÐUST SNÖGGLEGA ÞEGAR TÆKIÐ FÉLL „Það var splitti á festingum sem halda undirstöðunum fyrir hringekjuna sem slitnaði og við það seig í rauninni aftari hlutinn á hringekjunni niður í jörðina og bollarnir, sem eru venjulega í svona 30 sentimetra hæð yfir