Breyta drögum að reglugerð eftir háværa gagnrýni lækna

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að drögum að reglugerð um heilsugæslu verði breytt í kjölfar háværrar gagnrýni lækna varðandi ákvæði um heimilislækna. Í stefnuyfirlýsingu stjórnvalda segir að unnið verði að þjóðarmarkmiði um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn.Í drögunum er hins vegar kveðið á um að fólk skuli skráð á ákveðna heilsugæslu­stöð samkvæmt eigin vali en annars sam­kvæmt lög­heimili og „að jafnaði á þver­fag­legt teymi heil­brigðis­starfs­manna“ – og því ekki endilega gert ráð fyrir því að fólk sé skráð á fastan heimilis­lækni. ORÐALAGI VERÐI BREYTT Alma segir í aðsendri grein á Vísi að hún skilji gagnrýni lækna á að orðalagið sé ekki fyllilega skýrt og afdráttarlaust. Hún segir að ákvæðið hefði átt að orðast þannig að einstaklingur sé „að jafnaði skráður hjá heim
Breyta drögum að reglugerð eftir háværa gagnrýni lækna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd