Maður á áttræðisaldri var úrskurðaður látinn á tjaldsvæði í Biskupstungum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.Tilkynning barst um hádegisbilið í gær um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi á tjaldsvæði í Biskupstungum. Lögregla og sjúkralið voru send á vettvang.„Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin,“ segir í tilkynningunni.Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins sem er rannsakað sem slys. Meðal þess sem er til skoðunar hvort um gaseitrun hafi verið að ræða.