Vilborg Hjaltested, dóttir Vatnsendaerfingjans Magnúsar Hjaltested, segir að umdeild erfðaskrá um Vatnsenda sé kýrskýr og eigi að fá að standa óbreytt. Erfðaskráin lýsi eindregnum vilja þess sem hana ritaði fyrir 90 árum. Tilfinningar fólks í dag eigi ekki að fá að breyta því.Í hlaðvarpsþáttunum Álögin á Vatnsenda er fjallað um hatrammar deilur sem staðið hafa yfir í áratugi um jörðina Vatnsenda í Kópavogi. Deilurnar eiga rætur sínar að rekja til erfðaskrár sem eigandi Vatnsendajarðarinnar gerði 1938. Eigandinn gaf frænda sínum, Sigurði K. Hjaltested, jörðina og fyrirskipaði að jörðin ætti að ganga í erfðir frá elsta syni til elsta sonar.Hér má heyra fyrsta þáttinn.Vilborg Hjaltested, dóttir erfingja Vatnsendajarðarinnar, vill ekki að tilfinningasemi fólks verði til þess að umdeildri erfða