Tvö börn fóru á slysadeild eftir að tívolítæki féll á Bryggjuhátíð á Stokkseyri í gær. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir þetta. Hann segir börnin hafa verið með einhverja áverka eftir slysið en ekki alvarlega.Foreldrar barnanna fóru með þau á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Atvikið gerðist um klukkan 15:30 í gær og lögregla fór á staðinn. Magnús segir að Vinnueftirlitið verði upplýst um málið sem sé til rannsóknar.Ingi Þór Jónsson heldur utan um skipulag Bryggjuhátíðar. Hann segir það hafa verið áfall þegar tækið féll í gær.Tækið, sem er hringekja með bollum sem börn sitja í, hafi verið fullsetið. Það er rekið af fyrirtækinu Hringekjunni ehf.Ingi Þór segir tækið hafa verið í gangi þegar íhlutur á festingu, svokallað splitt, þess brotnaði í gær með þe