Nokkur óvissa var um tíma hvort hátíðarhöld myndu halda áfram en Bandaríkjaforseti tók svo af allan vafa þegar hann sagði í færslu á X að dagskránni yrði fram haldið sama hvað.NBC News segir að um 10.000 gestir hafi verið á hátíðarsvæðinu þegar hátíðarhöldum var frestað vegna veðurs og lögregla og gæslufólk fóru að vísa fólki af svæðinu.Fleiri hundruð manns neituðu fyrst að yfirgefa svæðið þrátt fyrir skipun lögreglu og gæslumanna á svæðinu en að endingu tókst að rýma allt svæðið og gestir leituðu skjóls undan þrumuveðrinu í nærliggjandi byggingum.Nokkrum tímum síðar var gestum aftur hleypt inn í garðinn og Trump hélt hátíðarræðuna. SEGIR BANDARÍKIN ÞJÓÐ SIGURVEGARA Ræða Bandaríkjaforseta var á sögulegum nótum. Hann rakti nokkur dæmi um hernaðarlega sigra Bandaríkjahers í gegnum tíðina.