Alþjóðlegar björgunarsveitir hafa hætt leit að fólki á lífi, tíu dögum eftir jarðskjálftana í Venesúela. Við blasir gríðarlegt neyðarástand þar sem spítalar eru yfirfullir og þúsundir hafast við á götunni.Mikillar reiði gætir meðal sumra íbúa sem saka stjórnvöld um hæg viðbrögð við jarðskjálftunum. Delcy Rodriguez, sitjandi forseti Venesúela, hefur varið ríkisstjórnina og segir að þúsundir björgunar- og viðbragðsfólks hafi verið á vettvangi.Enn er fólk að leita ástvina sinna í rústunum til að geta jarðsungið þá.Sameinuðu þjóðirnar áætla að tjón af völdum jarðskjálftanna sé um 6,7 milljarðar dollara sem jafngildir um 6% af vergri þjóðarframleiðslu Venesúela.Ástandið í landinu var erfitt fyrir. Landið hefur glímt við bágan efnahag og pólitískan óstöðugleika síðustu áratugi sem hefur grafið u