Það er von á sól og blíðu víða í dag og hita frá 7 til 18 stigum. Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður breytileg átt upp á 3 til 10 metra á sekúndu, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hlýjast verður suðvestantil á landinu.Á morgun má búast við vætusamara og hvassara veðri, sérstaklega á sunnanverðu landinu. Gert er ráð fyrir suðvestanátt upp á 5 til 13 metra á sekúndu, rigningu sunnan- og vestantil en annars skýjað með köflum og þurrt. Hiti verður á bilinu 9 til 17 stig og hlýjast á Norðurlandi.