Einstaklingur í annarlegu ástandi sökum áfengis- og fíkniefnaneyslu var handtekinn í Kópavogi í gær eða nótt eftir að hafa verið til vandræða.Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að við handtökuna hafi komið í ljós að einstaklingurinn var eftirlýstur og var hann því vistaður í fangaklefa. Ekki kemur fram fyrir hvað viðkomandi var eftirlýstur.Þá var lögregla kölluð til vegna tveggja einstaklinga sem höfðu komið sér fyrir í stigagangi fjölbýlishúss í Breiðholti. Þeim var vísað á brott af lögreglu.Einstaklingur var handtekinn í Laugardalnum fyrir að hafa stolið rafhlaupahjóli. Hann var fluttur á lögreglustöð til skýrslutöku.Lögregla sinnti einnig umferðareftirliti á Kjaranesi og voru 70 ökumenn látnir blása sem reyndust allir vera með sitt á hreinu.Fram kemur í dagbók lögreglunnar