Eitt herskipa kínverska sjóhersins við bryggju í Qingdao, 12. september 2023. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / XINHUA / Liu FangSjóherir Kína og Rússlands ætla að halda sameiginlega heræfingu síðar í þessum mánuði úti fyrir ströndum hafnarborgarinnar Qingdao í austur Kína. Kínverska varnarmálaráðuneytið greindi frá þessu í færslu á X í dag.Að lokinni heræfingunni siglir hluti af sjóherum beggja landa áfram til eftirlits í Kyrrahafinu. Kínversk yfirvöld segja æfinguna árlega æfingu. Markmið æfingarinnar er að tryggja frið og stöðugleika í heimshlutanum.