Klifraði upp í Eiffelturninn og hengdi upp bandaríska fánann

AP / Michel EulerMaður klifraði upp í Eiffelturninn í París í gær og hengdi upp bandaríska fánann.Vitni sáu manninn klifra upp síðdegis og honum tókst að klifra upp miðja vegu milli annarrar og þriðju hæðar turnsins, þar sem hann kom fánanum fyrir.Maðurinn var handtekinn og fáninn var tekinn niður. Maðurinn gaf lögreglunni engar skýringar á athæfinu en líklega hefur hann viljað minnast þjóðhátíðardags Bandaríkjanna sem var í gær.Eiffelturninn er alls 324 metrar á hæð og eitt þekktasta og vinsælasta kennileiti Parísarborgar. Um sjö milljónir ferðamanna heimsækja turninn ár hvert.
Klifraði upp í Eiffelturninn og hengdi upp bandaríska fánann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd