Svífa um í loftbelg og laga raflínur

Hvítur belgur var sendur á loft í Vésubie-dal í suðurhluta Frakklands fyrir helgi. Í sæti neðan í honum voru sérfræðingar á leið í verkefni. Raflínur höfðu skemmst í eldingum og þær þurfti að laga. Verkið er vandasamt en vel tókst til.Jérôme Delamare, sem stjórnaði belgnum, segir að þeir hafi verið eins og fugl að setjast á raflínu. „Rétt í þann mund sem við nálguðumst línuna greip rafvirkinn í hana. Við festum við karabínukassa og kræktum í línu og loftfarið stillti sjálfvirkt hæðina. Við hættum að hreyfast. Og unnum eins og við vinnuborð.“Loftbelgurinn er notaður árið um kring til að sinna viðhaldi og viðgerðum á raflínum. Béatrice Pandelis, framkvæmdastjóri Enedis rafveitunnar, segir að í hæðóttu landslagi sé þessi uppfinning afar gagnleg.
Svífa um í loftbelg og laga raflínur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd