Frakkland vann Paragvæ í 16-liða úrslitum HM en það var þolinmæðisverk. Það tókst loksins fyrir Frakka að skora þegar brotið var á Desire Doue inn í teig þegar hann var nýkominn inn á sem varamaður og vítaspyrna dæmd. Kylian Mbappe skoraði úr spyrnunni og kom Frökkum áfram. Marokkó komst þá áfram eftir sigur gegn Kanada.