Mikilli hátíðardagskrá í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna sem stendur nú yfir í Washington-almenningsgarðinum í Washington hefur verið frestað.Það er þó ekki vegna hitabylgju, sem hefur sett hátíðarhöld úr skorðum víða í Bandaríkjunum í dag – heldur vegna þrumuveðurs. Þrumuveður er að byggjast upp samkvæmt ratsjármyndum og hætta er á að þrumuveður fari yfir borgina.NBC News segir að um 10.000 manns séu á svæðinu. Verið er að vísa fólki burt frá garðinum til bygginga í grenndinni.The New York Times segir nokkra óreiðu á svæðinu. Fleiri hundruð manns neituðu fyrst að yfirgefa svæðið þrátt fyrir skipun lögreglu og gæslumanna á svæðinu.Óvíst er hvort eða hvernig þetta mun raska dagskrá það sem eftir lifir dags. Til stóð að Donald Trump Bandaríkjaforseti flytti hátíðarhöldunum ræðu klukkan