Donald Trump Bandaríkjaforseti átti samtöl við bæði Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta í dag, í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna. Bandaríkjaforseti ræddi við þá í sitt hvoru lagi.Yuri Ushaov, aðstoðarmaður Kremlarstjórnar í utanríkismálum, sagði að Trump og Pútín hefðu talað saman í tæpa eina og hálfa klukkustund. Þeir hefðu rætt málefni Úkraínu og einnig Írans og Mið-Austurlanda.Zelensky óskaði Bandaríkjaforseta og bandarísku þjóðinni til hamingju með þjóðhátíðardaginn og 250 ár afmælið í færslu á X í dag. Hann sagði að hann hefði átt mjög gott samtal við Trump í tilefni dagsins. Þeir hefðu rætt um stöðuna á víglínunni og diplómatískar leiðir til að binda enda á stríðið. Hann sagði Bandaríkin gegna veigamiklu hlutverki í því samhengi.Trump og Zelensk