32 ára sænskur karlmaður er látinn eftir alvarlega líkamsárás sem hann varð fyrir á HM-hátíð á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn síðastliðinn þriðjudag. Lögreglan í Kaupmannahöfn staðfesti andlát mannsins en tildrög árásarinnar eru enn í rannsókn. STIMPINGAR MILLI TVEGGJA HÓPA Árásin átti sér stað á viðburði þar sem sýnt var frá leik Fílabeinsstrandarinnar og Noregs á risaskjá á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Samkvæmt frétt DR hlaut maðurinn heilablæðingu og brot á hryggjarlið eftir högg á hálsinn.Sjónarvottar sem ræddu við danska fjölmiðilinn Ekstra Bladet sögðu að stimpingar hafi brotist út á milli tveggja hópa þegar mark var skorað í leiknum, en óvíst er hver þáttur hins látna var í þeim átökum. Á AÐ BAKI ALVARLEGAN AFBROTAFERIL 31 árs gamall maður hefur verið kærður í tengslum v