Hefur ekki trú á að Íslendingar segi „já“ í ágúst

„Ég held að Íslendingar séu ekki almennt það heimskir að velja já. Svo ekki verður af aðildarviðræðunum.“Þetta sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í viðtali við breska miðilinn Telegraph í umfjöllun sem birtist í dag. Vísaði hann þar til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið í ágúst.„Hver vill ganga til liðs við nánast gjaldþrota ríkjabandalag?“ sagði Kristján enn fremur.Í Telegraph eru leiddar að því líkur að gangi Ísland í Evrópusambandið fái landið ekki að stunda hvalveiðar áfram. Evrópusambandið leggst gegn þeim.Kristján segir ekkert því til fyrirstöðu að halda hvalveiðum áfram endalaust, svo lengi sem passað sé upp á að veiða ekki of mikið í einu.Hvalveiðivertíð er yfirstandandi og á annan tug langreyða hefur verið veiddur. Náttúruverndarsa
Hefur ekki trú á að Íslendingar segi „já“ í ágúst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd