720 þingmenn sitja á Evrópuþinginu, kjörnir til fimm ára í senn. Íbúafjöldi í hverju aðildarríki er það sem ákvarðar fjölda frá hverju ríki, þó þannig að smærri ríkin fá hlutfallslega fleiri en þau stóru.Þannig koma 96 þingmenn frá Þýskalandi, og 81 frá Frakklandi – en aðeins sex, sem er lágmarkið, frá Kýpur, Möltu og Luxemborg.Fréttastofa RÚV ræddi við tvo þingmenn, frá Lúxemborg og Möltu, þau koma úr flokkahópum Sósíal Demókrata og Græningja - og bað þau að meta stöðu sína á þinginu, komandi frá tveimur af smæstu aðildarríkjum Evrópusambandsins.Smæstu aðildarríki ESB hafa hvert um sig sex fulltrúa á Evrópuþinginu, en áhrif þeirra fara ekki eftir fjölda, segja þingmenn frá Luxemborg og Möltu. Atkvæðavægi í ráðherraráðinu er heldur ekki það eina sem skiptir máli, segir sérfræðingur.