Mikilvægt er að draga úr óþarfri notkun lyfja vegna neikvæðra áhrifa þeirra á umhverfið, segir lyfjafræðingur. Kolefnisspor við hvert skipti sem astmalyfjaúði er notaður jafnast á við kolefnisspor bílferðar frá Reykjavík til Akureyrar.Í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er fjallað um umhverfisáhrif lyfja. Lyf eru meðal algengustu meðferðarúrræða í heilbrigðisþjónustu en þau geta einnig haft neikvæð umhverfisáhrif.Höfundur greinarinnar, Freyja Jónsdóttir, dósent í lyfjafræði, segir vert að læknar hafi í huga leiðir til að draga úr neikvæðum áhrifum lyfja. Hún bendir á að lyf geti haft neikvæð umhverfisáhrif þegar þau berast út í umhverfið og því sé mikilvægt að farga þeim á réttan hátt.„Ef þú fargar lyfjum, til dæmis með því að setja þau í rusl eða í vask eða klósett, þá fara lyfin út í umhve