Árekstrar hafa orðið víða um land í dag og verkefni lögreglu hafa verið fjölmörg vegna þungrar umferðar, enda fjöldi fólks á ferðalagi.Tveggja bíla árekstur varð á Norðurlandi vestra, á mótum Hálsabæjarvegar og Norðurlandsvegar, um þrjúleytið í dag. Lögregla segir fjóra hafa slasast en þó ekki alvarlega. Lögregla og sjúkraflutningamenn voru send á vettvang.Talsverðar tafir eru á umferð vegna slyssins. Pétur Björnsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra, segir að umferð sé stýrt um vettvang slyssins.Ef til vill hefur verið mest að gera hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Í umdæminu hafa í dag verið tveir tveggja bíla árekstrar, bíll valt í öðrum þeirra. Fyrir hádegi var ekið á gangandi vegfaranda í Vík í Mýrdal.Öll meiðsli voru minni háttar, segir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri á Suðurland