Það ná ekki allir fugli á fyrsta golfhringnum sínum en það gerði Aldís Embla Magnúsdóttir í gær. Aldís fór hringinn reyndar „mörgum, mörgum, mörgum höggum yfir pari“ og var ekki að telja höggin að eigin sögn. Henni tókst hins vegar að bjarga fugli, líklega lómi, sem var flæktur í vír og barðist um í tjörn við 18. holu á velli Golfklúbbs Þorlákshafnar.Aldís óð út í tjörnina og var í nokkrar mínútur að ná fuglinum.„Ég hugsaði svo sem ekkert rosalega mikið út í þetta. Ég sá bara að hann var flæktur og ákvað að sjá hvort það væri ekki hægt að ná honum og losa hann,“ segir Aldís í viðtali.Þórunn Jónsdóttir náði þessu skemmtilega myndbandi af björguninni.Ung kona frá Þorlákshöfn náði fugli á sínum fyrsta golfhring í gær. Það var þó ekki sams konar fugl og flestir kylfingar sækjast eftir.Aldís se