Þriggja ára drengur sem slasaðist alvarlega þegar hann féll í krókódílagerði í breskum dýragarði á fimmtudag hefur þurft að undirgangast fimm aðgerðir vegna meiðslanna. Hann þarf líklega að undirgangast að minnsta kosti tvær til viðbótar. Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir foreldrum barnsins.Þar segir að minnst einn krókódíll hafi ráðist á drenginn í gerðinu. Læknar telja mögulegt að drengurinn hafi hlotið varanlegan taugaskaða í höndum og handleggjum.Þrítugur maður frá Norfolk er grunaður um að hafa fleygt drengnum í gerðið og hefur hann verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Ekkert bendir til þess að hann þekki til drengsins og tildrög atviksins liggja ekki fyrir.Lögreglan segir að maðurinn hafi verið metinn óhæfur til skýrslutöku vegna greindarskerðingar. Hann var í fylgd umönnu