Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir tjónið eftir innbrot á bú þeirra í maí hafi verið meira en búist var við í fyrstu. „Það urðu um sjö fósturlát í allt. Það er stórtjón.“Hann bendir á að hver gylta geti gotið allt að 15 grísum. Þá þurfti að aflífa nokkur dýr vegna innbrotsins. „Þetta var verra en ég bjóst við.“Brotist var inn á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí og á hæsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní. Dýrum var hleypt út og skemmdarverk unnin á búunum. Innbrotin eru talin tengjast og fleiri en einn liggja undir grun.Geir giskar á að fjárhagslegt tjón Stjörnugríss nemi um 10 milljónum króna, þótt ekki sé hægt að slá því föstu. „Svo er það sem er aldrei metið til fjár – andlegi þátturinn hjá starfsfólki og öllum.“ Mikið álag hafi fylgt því að vi