Umhverfis- og orkustofnun áformar að synja Akureyrarbæ og Norðurorku um að skilgreina innri Eyjafjörð sem síður viðkvæmt svæði þegar kemur að fráveitu og skólphreinsun. Þetta liggur fyrir eftir niðurstöður umhverfisvöktunar á svæðinu. Þær benda til þess að botndýralíf þar sé undir álagi. Niðurstöður vöktunarinnar komu Norðurorku ekki á óvart.„Auðvitað reiknuðum við með lífrænu álagi en kannski ekki eins miklu og kom fram í þessari rannsókn,“ segir Stella Árnadóttir, umhverfis og öryggisstjóri Norðurorku. GÆTI ÞURFT ANNARS STIGS HREINSUN Ef Eyjafjörðurinn fær ekki þessa skilgreiningu þarf að ráðast í annars stigs hreinsun.„Þá eru í rauninni þessu lífrænu efni þau eru hreinsuð betur frá. Fyrsta stigið er í rauninni að þá er ákveðin lágmarks hreinsun á fráveituvatninu og sigtun. Önnur stig