Þúsundir mótmælenda hafa komið saman þar sem landsfundur þýska stjórnmálaflokksins Alternative für Deutschland (AfD) verður í dag. Fólkið er á móti stefnu flokksins og ætlar að freista þess að koma í veg fyrir landsfundinn.Flokkurinn heldur landsfund í borginni Erfurt í dag. Þrátt fyrir að hann sé umdeildur hefur fylgið farið vaxandi. Þúsundir mótmælenda hafa komið sér fyrir við staðinn þar sem landsfundurinn er haldinn. Þeir hafa lokað vegum og truflað almenningssamgöngur. Flestir gestir landsfundarins komust þó þangað á réttum tíma. Lögregla telur að um 20.000 mótmælendur séu í borginni.Meðal mótmælenda er Lena Raupach, talsmaður samtaka gegn fasisma. Hún segir fólk hafa komið saman því það vilji koma í veg fyrir að flokkurinn geti haldið landsfundinn. Hún sakar AfD um að stefna að því a