Arngrímur Guðmundsson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri alþjóðalandamærasviðs, kannast ekki við að tæknileg vandræði hafi komið upp í tengslum við Entry Exit-landamærakerfið (EES) líkt og í öðrum Evrópulöndum.Margra klukkutíma langar raðir hafa myndast á flugvöllum víða í Evrópu og var Evrópusambandið hvatt af hagsmunasamtökum til að taka kerfið úr sambandi yfir háannatímann í júlí og ágúst.Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði í gær að tæknilegir örðugleikar í tengslum við kerfið hefðu valdið töfum. Unnið væri með aðildarríkjum að viðgerðum.Arngrímur segir það sama ekki gilda um tenginguna hér en vissulega sé flókið að taka upp kerfi líkt og EES.„Það er náttúrulega verið að innleiða stórt og mikið kerfi og í þessum samræmdu landamærakerfum þá tekur afgr