Drónaárásir á olíuinnviði við Sankti Pétursborg

Úkraínuher gerði í nótt drónaárásir á olíuinnviði í nágrenni við næststærstu borg Rússlands, Sankti Pétursborg. Úkraínuforseti segir árásirnar gerðar til að aftra Rússum frá því að afla sér tekna til stríðsrekstursins með olíuviðskiptum.Úkraínumenn hafa hert árásir á olíuinnviði Rússa síðustu mánuði og farið er að bera á skorti á eldsneyti. Sums staðar hefur verið gripið til þess ráðs að skammta bensín og dísilolíu. Fregnir hafa borist af því að fólk hafi beðið löngum stundum í röð á bensínstöðvum.Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði í færslu á samfélagsmiðlum í morgun að Úkraínuher hefði gert árásir á olíuhöfn sem Rússar nýti til að afla tekna til að knýja stríðsrekstur sinn áfram. Þá sagði Zelensky að gerðar hefðu verið árásir á Kronstadt, mikilvæga flotastöð nálægt Sankti Pétursbo
Drónaárásir á olíuinnviði við Sankti Pétursborg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd