Það var með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að Evrópusambandinu. Þetta segir forsætisráðherra sem telur fólk þurfa að fá að vera í friði til að melta sína ákvörðun. Þingið hafi tjáð sig lengi um málið.