Lögreglumaður var kýldur í andlitið í miðbæ Reykjavíkur í morgun. Tveir einstaklingar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við málið og eru í varðhaldi. Erna Dís Gunnarsdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta.Hún segir lögreglumanninn hafa verið kýldan þegar hann kom að hópslagsmálum ekki færri en fimm einstaklinga í miðborginni. Þetta var um hálf fimm í morgun og þeir sem áttu í hlut í annarlegu ástandi eftir að hafa verið að skemmta sér yfir nóttina.Erna segir atvikið þó minniháttar og að enginn hafi slasast alvarlega. Að vísu hafi lögreglumaðurinn verið mjög aumur eftir hnefahöggið. Málið er til rannsóknar og þeir sem voru handteknir í tengslum við það verða yfirheyrðir síðar í dag.Einn var handtekinn í Breiðholti í kringum miðnætti vegna líkam