Guðlaugur Þór Þórðarson, sem nú er óbreyttur þingmaður, er fyrst og fremst fyrrverandi ráðherra en ekki stjórnmálamaður sem er í stöðu til að gera tilkall til þess að ráðherrar og formenn flokka mæti honum í einhvers konar kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Guðlaugur Þór hefur aldrei verið formaður flokks – langaði reyndar mikið til þess. Hann bauð sig fram gegn sitjandi formanni Sjálfstæðisflokksins en tapaði kosningunni með 40% atkvæða á móti 60% sitjandi formanns.