Evrópska lánshæfismatsfyrirtækið Scope Ratings hefur veitt ríkissjóði Íslands lánshæfiseinkunnina A-A-mínus í innlendri og erlendri mynt með stöðugum horfum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.Scope Ratings er að meta lánshæfi Íslands í fyrsta sinn en hefur metið lánshæfi ríkja frá 2017, alls 38 ríkja.Fyrirtækinu þykja helstu styrkleikar íslenska hagkerfisins vera háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanburði, tiltölulega lágar og lækkandi skuldir hins opinbera, trúverðug ríkisfjármálastefna og sterk skuldbinding stjórnvalda til ábyrgrar ríkisfjármálastjórnar.Ytri staða þjóðarbúsins sé sterk, sem stuðli að viðnámsþrótti gagnvart ytri áföllum.Það sem Scope Ratings telur helst takmarka lánshæfiseinkunn Íslands er tiltölulega fábreyttur útflutningur, sem gerir hagkerfið útsett