Tveir rúmenskir menn hafa verið dæmdir í fangelsi í Bretlandi fyrir lífshættulega árás á íransk-breskan blaðamann í Lundúnum. Blaðamaðurinn, Poura Zeerati, starfaði fyrir sjónvarpsstöðina Iran International, sem hefur gagnrýnt írönsk stjórnvöld – og eru mennirnir taldir hafa ráðist á hann vegna þess.Þeir réðust á Zeerati með hnífi fyrir utan heimili hans í Wimbledon í mars 2024. Annar var dæmdur í tólf ára fangelsi og hinn átta.Dómari í málinu sagði árásina hafa verið þaulskipulagða og að skýr merki væru um að hún hefði verið fyrirskipuð af þriðja aðila fyrir hönd íranska ríkisins. Zeerati segist upplifa hræðslu og kvíða í kjölfar árásarinnar. Hann flutti frá Bretlandi af ótta við frekari árásir.