Hjá Viss vinna 15 starfsmenn sem eru með skerta starfsgetu og svo eru nokkrir leiðbeinendur. SS á Hvolsvelli býður alltaf í flotta grillveislu síðasta dag fyrir sumarfrí og var það núna föstudaginn 3. júlí. Fjölbreytt verkefni eru unnin hjá VISS.„Já, við erum að reyna að gera okkar besta til að gera VISS að skemmtilegum atvinnustað og að fólk hafi gott af því að koma í VISS, það er markmiðið. Við erum að vinna mjög fjölbreytt verkefni og fyrirtækin sem eru hér á svæðinu eru að nota þjónustuna okkar,” segir Elías Árnason, deildarstjóri yfir VISS á Hvolsvelli.Mikil ánægja var með grillveisluna en boðið var upp á kjöt og pylsur með meðlæti og drykkjum.„Þetta er þriðja árið sem við grillum fyrir þau hérna fyrir sumarfrí. Það er bara frábært að sjá hvað er verið að gera hér, það er verið að búa