Telur NATO lifa af

Eftir helgi hefst fundur þjóðarleiðtoga NATO-ríkjanna í Ankara í Tyrklandi. Óhætt er að segja að nokkuð hafi gengið á í aðdraganda þessa fundar, nánast allt tengt Donald Trump Bandaríkjaforseta og yfirlýsingum annarra ráðamanna vestra. Nú síðast boðaði Pete Hegseth varnarmálaráðherra sex mánaða endurskoðun varnar- og öryggisþarfar þegar hann ræddi við starfsbræður sína á NATO-fundi í Brussel.Luke Coffey er sérfræðingur hjá Hudson-hugveitunni í Washington, íhaldsmaður og var áður hjá Heritage-stofnuninni, þar sem hið svokallaða Project 2025 var samið – níu hundruð blaðsíðna aðgerðaáætlun sem stjórn Trumps hefur fylgt í mörgum atriðum.Coffey sagði skilið við Heritage vegna þessa og telst því seint til stuðningsmanna Trumps. Hann segir of snemmt að segja til um hvaða þýðingu þessar yfirlýsing
Telur NATO lifa af

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd