Í dag má búast við norðvestanátt upp á 8 til 15 metra á sekúndu norðaustantil en annars hægum vindi. Þá verða dálitlar skúrir á Norðurlandi en bjart að mestu á sunnanverðu landinu samkvæmt Veðurstofu Íslands. Hiti á bilinu 6 til 17 stig og svalast við norðurströndina en mildast syðst.Á morgun er von á breytilegri átt upp á 3 til 10 metra á sekúndum, að mestu björtu og þurru veðri. Hiti 7-18 stig og hlýjast suðvestanlands.