Íslensk-ísraelska fyrirtækið VAXA Technologies, sem sérhæfir sig í smáþörungaræktun á Hellisheiði, hefur selt þúsundir kolefniseininga byggða á umdeildum útreikningum til stórfyrirtækja á borð við Arion banka. Fyrirtækið hefur haldið því fram að notast við 100 prósent hreina orku án þess að hafa upprunaábyrgðir því til staðfestingar. Slíkar ábyrgðir eru forsenda þess að geta haldið slíku fram. Afskráningar á öllum kolefniseiningum...