Segir þjóðinni stafa ógn af kommúnisma

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að bandarískri þjóðernisvitund stafi ógn af róttæklingum og ofstækisfólki. Þetta sagði hann í ræðu sinni í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna við Mount Rushmore í Suður-Dakóta í gær.Ræða hans þótti bera vott um mikla föðurlandsást og hann hrósaði fyrri leiðtogum þjóðarinnar. Hann sagði þó að kommúnismi hefði verið endurvakinn og af honum stafaði mikil ógn. Trump hefur talað á þessum nótum áður en á síðustu vikum hafa nokkrir vinstri sinnaðir demókratar sigrað í forkosningum fyrir þingkosningar í nóvember. SKRÚÐGÖNGU Í WASHINGTON D.C. AFLÝST VEGNA HITA Bandaríkjamenn fagna þjóðhátíðardegi sínum í dag en útlit er fyrir að mikil hitabylgja setji hátíðarhöld úr skorðum víða. Breska ríkisútvarpið segir að skrúðgöngu sem átti að fara fram í Washington D
Segir þjóðinni stafa ógn af kommúnisma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd