Miklir gróðureldar hafa geisað í norður Portúgal síðan á miðvikudag. Að minnsta kosti níu eru slasaði af völdum eldanna, þar af tveir alvarlega. Eldurinn kom upp í sveitarfélaginu Vouzela og hefur breiðst hratt út á yfir 10.000 hektara svæði nú þegar.Yfir eitt þúsund slökkviliðsmenn á 300 ökutækjum reyna að slökkva eldana. Átta flugvélar og þyrlur eru einnig nýttar til slökkvistarfs sem er umfangsmikið. Portúgalska veðurstofan hefur varað við því að hitinn gæti farið upp í 44 gráður á sumum svæðum um helgina og rauðar veðurviðvaranir vegna hita eru í gildi í 10 af 18 héruðum landsins.Yfirvöld hafa óskað eftir auknum liðsauka frá Spáni, Marokkó og evrópskum almannavörnum til að slökkva gróðureldana. Forsætisráðherra Portúgals, Luis Montenegro, sagði að allt landsvæðið væri í mjög mikilli hæ