Fyrsti dagur útfarar Khameinis var í höfuðborg Írans, Tehran, í dag. Ali Khamenei var æðstiklerkur frá 1986 og var ráðinn af dögum í árásum Bandaríkjanna og Ísraels 28. febrúar.Athafnir verða í nokkrum borgum næstu daga og búist er við allt að 20 milljónum gesta. Meðal fulltrúa erlendra ríkja í dag var utanríkisráðherra Talibanastjórnarinnar í Afganistan, forsætisráðherra Pakistans, fulltrúar Hamas og Hezbollah og varaformaður öryggisráðs Rússlands.Khamenei stjórnaði Íran með harðri hendi og í valdatíð hans voru þúsundir drepnar fyrir gagnrýni á stjórnvöld. Óljóst er hvort sonur hans, Mojtaba Khamenei, sem tók við embætti æðstaklerks að föður sínum látnum, mæti í útförina. Hann særðist í árásum í febrúar og hefur ekki sést opinberlega síðan.