Miðar á leik Englands og Mexíkó í 16-liða úrslitum HM eru komnir í endursölu á gríðarlega háu verði.Á opinberum endursölumarkaði FIFA er dýrasti miðinn auglýstur á rúmlega 26 þúsund pund, þrátt fyrir að upphaflegt verð hans hafi verið aðeins 605 dalir.Miðarnir voru upphaflega seldir stuðningsmönnum Englands í gegnum stuðningsmannakerfi enska knattspyrnusambandsins. Alls voru 3 þúsund miðar í boði en yfir 4 þúsund manns sóttu um.FIFA leyfir endursölu miðanna á opinberum markaði sínum og eru það seljendurnir sjálfir sem ákveða verðið.