„Smá léttir, og svekktir á sama tíma. Þeir áttu meira leikinn í seinni hálfleik og við þurfum aðeins að læra að stjórna leiknum betur á pörtum. Rosa góður fyrri hálfleikur en þreytt að fá þá einmitt tvö mörkin á okkur sem við þurfum bara að laga. Á sama tíma þá voru þeir með mikla pressu á okkur og sóttu mikið. Þannig þetta er kannski bara allt í lagi úrslit," sagði Jökull Andrésson markvörður FH-inga eftir 2-2 jafntefli við Stjörnuna í kvöld.Stjörnumenn sóttu stíft í seinni hálfleik og áttu nokkur algjör dauðafæri. Jökull varði hins vegar frábærlega vel og kom í veg fyrir að Stjarnan skoraði sigur markið.„Það er rosalega fallegt af þér, takk fyrir," sagði Jökull fyrst við fréttamann, hógvær að vana. „Svarið er bara að maður vill hjálpa liðinu, þetta er ástæðan fyrir því að við æfum rosa m